29.4.2009 | 10:11
Hvernig ætla þeir þá að bregðast við....
ef fólk ákveður að hætta alfarið að borga af sínum lánum? Persónulega er ég orðinn hundleiður á yfirgangi og vaxtaokri, þannig að ef ekki væri hætta á að þeir sem hafa gengist í ábyrgð fyrir mig, sem nota bene er náttúrulega fáheyrt kjaftæði, þá mundi ég einfaldlega hætta að borga af öllu nema því allra nauðsynlegasta, t.d. hiti, rafmagn, sími og netið, og leyfa þessum skúrkum að hirða það sem þeim er heimilt samkvæmt lögum. Raunar á ég ekkert sem hægt er að leggja hendur á, þannig að ég stend kannski betur en margur annar að því leitinu til.
Ég er með bílalán sem var tekið á myntkörfu og er að sligast undan því. Upphafleg greiðsluupphæð á láninu var um 18þúsund krónur á mánuði, plús/mínus einhverjir hundraðkallar. Núna stendur það í tæpum 42þúsund og ég er mikið að spá í að gefa bara skít í það. Versta er hins vegar að þeir myndu gera bíltíkina upptæka og ég sæti síðan áfram uppi með lánið, þrátt fyrir að forsendur lántökunnar séu löngu brostnar.
Hér þarf sem sé að setja lög sem tryggja neytandanum rétt á að skila bíllyklunum og losna undan láninu, ef forsendur lánsins hafa breyst svo mikið að lántaki standi ekki lengur undir greiðslum. En hingað til hafa ríkisstjórnir ekki séð ástæðu til að setja svoleiðis löggjöf og ég er ekkert að reikna með að vinstri stjórnin geri neitt í þeim málum.
Hafna fyrirvara við lánin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2009 | 11:15
Það er náttulega tómt rugl
Rooney hefur ítrekað sýnt vanvirðingu sína á þeim svartklæddu og rífur stanslaust kjaft og hreytir í þá ósæmilegu orðbragði. Samt kemst hann alltaf upp með það. Það er kominn tími til að strákormurinn fái að taka afleiðingum orða sinna og athafna, þannig að þessi ákvörðun aganefndar enska knattspyrnusambandsins er vægast sagt hlægileg.
Það er ósköp einfalt að stemma stigu við svona hegðun leikmanna, leikbönn um lengri eða skemmri tíma, eftir því hvort um sé að ræða fyrsta brot eða síendurtekna óæskilega hegðun á velli. Það má ekki gleyma því að þessir menn eiga að heita að vera fyrirmyndir ungra knattspyrnumanna, sem og áhugamanna um allan heim, því á það ekki að líðast að þeir komist upp með svona framkomu á velli.
Engin frekari refsing hjá Rooney | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.2.2009 | 12:48
Kominn tími til
Parry að hætta hjá Liverpool | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.2.2009 | 15:45
Hvernig væri að fara að þeirra fordæmi??
Óbreyttir stýrivextir í Ungverjalandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2009 | 14:37
Vona að þessu sé þá lokið
Ítalskur dómstóll gerir sektarsátt við tæknimenn McLaren | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2009 | 14:31
Kerling er þetta!!
Lawrence: Hermann, klipptu á þér neglurnar! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2009 | 14:07
Fjögur og hálft ár???
Hvaða þvæla er þetta eiginlega?? Það væri réttast að setja svona menn í grjótið ævilangt, án möguleika á náðun. Og 1,2 millur í miskabætur er vægast sagt hlægilegt. Hvað með bætur vegna andlegs niðurbrots og tilheyrandi meðferðar? Hvað með bætur til barns þeirra, úr því að það var heima við meðan á þessu andstyggilega athæfi stóð?
Svona menn eru virkilega illa skemmdir og ég vona að hæstiréttur þyngi dóminn allverulega.
Hrottaleg árás og einbeittur vilji | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
19.2.2009 | 12:25
Fáránlegt!!
Skókastarinn fyrir rétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2009 | 13:38
Til Guantanamo??
Fangelsi fyrir fjölda afbrota | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.2.2009 | 11:16
Vonandi að þær fái þá umfjöllun sem þær eiga þá skilið
Tilfellið er nefnilega að konurnar hafa gjarnan verið svo "heppnar" að fá kannski eina síðu í íþróttakálfum blaðanna, á meðan karlaboltinn hefur tekið að minnsta kosti eina opnu og oftar en ekki jafnvel eina aukasíðu til.
Konurnar spila líka bara miklu skemmtilegri bolta, þar sem leikgleðin er í fyrirrúmi, á meðan karlarnir eru í stanslausum kýlingum og kjaftbrúki við dómara leiks. Ég vil þá frekar meiri umfjöllun um þá sem virða hinn sanna íþróttaanda, frekar en prímadonnurnar í efstu deild karla, hvað sem hún nú heitir þetta árið.
Konurnar fyrstar og síðastar í sumar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar