Til hvers að hringja í þetta afstyrmi???

Það er ekkert mark á honum takandi hvort sem er. Meira að segja almenningur í Bretlandi er á þeirri skoðun. En af því að svona delar komast á valdastóla, þá virðast stjórnmálaskúnkarnir vilja "brúnnasa" með þeim í það endalausa. Ég vona svo sannarlega að Jóhanna bara "moon-i" þennan rugludall, hann á ekkert betra skilið.

Svo má náttulega beita sömu aðferðum á Bretana eins og þeir ætla að beita á aðra: Ef viðkomandi ríki hefur fengið skattatekjur af innistæðum og vaxtatekjum í breskum bönkum í því landi, þá borga Bretar ekki krónu. Við ættum að geta notað þeirra eigin rök á þá og séð hversu vel þeir taka því.


mbl.is Jóhanna hringi í Gordon Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pissað í skóinn sinn??

Þetta er alveg ótrúlega merkilegt eintak af manni þetta páfagerpi. Byrjar á að aflétta bannfæringu á öfgamönnum sem hafa í ræðu og riti afneitað helförinni og fullyrða að hún sé bara skáldskapurinn einn. Vatikanið er reyndar oft búið að brenna sig á asnaskap þeirra sem eru kjörnir til embættis páfa, ég man ekki eftir nema einum manni sem sinnti þessu hlutverki af auðmýkt og skynsemi og hann tók sér nafnið Jóhannes Páll 2. Því miður þá voru þeir ekki tilbúnir að halda áfram á þeirri braut og kusu sér mann sem hefur legið undir grun um stríðsglæpi, þó ekkert hafi sannast.
mbl.is Páfi fordæmir afneitun helfararinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blindur bílstjóri eða hvað??

Hvernig í ósköpunum gat hann komist hjá því að átta sig á því hvers kyns var, þegar hann kom að þessum slysstað. Hann sá aðra bíla sveigja frá einhverju en óð sjálfur yfir eins og ekkert væri sjálfsagðara. Lýsir kannski sjálfhverfunni í fólki best að hann bara lét vaða áfram, algjörlega sama um það hvað hefði verið á seyði þarna.
mbl.is Dróst með bíl 32 kílómetra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskari en stjórnmálamenn???

Ja maður spyr sig. Hún er vita laglaus, heimskari en fjandinn sjálfur og mann grunar að hún sé svo heimsk að hún væri tæk á þing. Ég vona bara McCartney's vegna að hann hunsi þessa hugmynd hennar, þvílík tjaraShocking
mbl.is Paris Hilton vill vinna með Paul McCartney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði nú verið skondið ef þeir hefðu óvart haft rétt fyrir sér.

Ekki það að ég óski Bush þess að geyspa golunni svona stuttu eftir að hann hætti þessu Hvíta Húss brölti sínu. En ég hins vegar veit að það er fullt af fólki um víða veröld sem þykist eiga harma að hefna og óska þess heitast að hann kveðji þessa jarðvist sem fyrst.

Hvers konar klúður ætli sé líklegt að geti orðið á Íslandi þó? Það væri fróðlegt að sjá Smile


mbl.is „Bush er látinn“ - mistök í beinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessaður, ekki láta hurðina flengja þig á leiðinni út

Jón veit það eins vel og við hin að hann mun missa þingsætið sitt í næstu kosningum, sem og aðrir flokksbræður hans að undanskildum kannski formanninum. En kannski ætlar Jón að stofna enn eitt nýtt framboðið, miðað við málflutning hans fyrir síðustu kosningar þá ætti hann kannski að ganga til liðs við nýnasistana íslensku. Gáfnafarið virðist vera svipað Grin
mbl.is Segir sig úr Frjálslynda flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er undrandi???

Í það minnsta ekki ég. Abramovich hefur nú ekki sýnt það að hann sé sá þolinmóðasti, þegar kemur að því að kaupa sér árangur í boltanum. Það verður fróðlegt að sjá hver leggur í að taka þetta að sér. Kannski Tony Adams, hann er jú á lausu núnaDevil Grin
mbl.is Scolari rekinn frá Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki auka fjölda sendiráða, frekar fækka þeim

Ef það á að spara einhvers staðar í ríkisrekstrinum, þá er það nákvæmlega þarna, í sendiráðsrekstrinum. Við þurfum ekki að halda úti sendiráði í hverju einasta andskotans krummaskuði í heiminum. Það væri nóg að halda úti svona 5 sendiráðum í allt og þau yrðu bara að sinna þeim störfum og erindum sem til þeirra bærust, gagnvart þeim svæðum sem þau ættu að þjóna.

Hættum þessum andskotans flottræfilshætti og förum betur með peningana okkar.


mbl.is Vill fjölga norrænum sendiráðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn titra á beinunum

Þeir eru óskaplega smeykir um að það sé verið að taka frá þeim þau góðu störf sem þeir hafa skammtað einkavinum sínum og flokksbræðrum undanfarin 17 ár. Auðvitað láta þeir eins og börn í sandkassa þess vegna. Að sjálfsögðu á að auglýsa öll svona störf og um þau eiga að gilda eðlilegar reglur vinnumarkaðarins ef um uppsagnir verður að ræða. 3-6 mánaða uppsagnarfrestur, hugsanlega 12 mánuðir ef viðkomandi hefur sinnt starfinu af stakri prýði í langan tíma. Ekki að tímasetja ráðningarnar til X margra ára, til að tryggja að viðkomandi pólitíkusar eða einkavinir geti ekki mokað inn lífeyrisréttindum og nefndasetulaunum, eins og hefur tíðkast hingað til.
mbl.is Skoða breytingar í bankaráðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fróðlegt

Það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta allt saman fer í Evrópu. Því ef Microsoft tapar málinu þar, þá má eins reikna með að þeir fái málshöfðanir í hausinn á fleiri stöðum í heiminum, jafnvel þó menn muni sleppa slíkum málarekstri í USA, þar sem þeir virðast mega gera það sem þeim sýnist og engum þykir neitt athugavert við það.

Hins vegar finnst mér alltaf jafn skrítið að svona risi eins og Microsoft skuli ekki hafa gert sér grein fyrir því fyrir löngu síðan, að svona spyrðing vafra, póstforrits og margmiðlunarforrits við kjarna stýrikerfisins, er í best falli kjánaleg og í versta falli stórvarasöm. Það þarf ekkert óskaplega flókinn ActiveX skipanabálk í vefsíðu, innihald margmiðlunarstraums eða í tölvupóstskeyti, til að knésetja stýrikerfið eins og það leggur sig, sérstaklega ef forritaranum hefur tekist að verða sér út um falsað Security Certificate, eignað Microsoft sjálfum.

Ég mun fylgjast meðDevil


mbl.is Mozilla til liðs við ESB í kærumáli gegn Microsoft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Tómas Þráinsson
Tómas Þráinsson
Hef skoðanir á öllu og er ekki alltaf kurteis um málin, enda ekki ástæða til

Tónlistarspilari

Tómas Þráinsson - Litli Úlfur
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 875

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband