Ekkert mál að ná sér í pening núna

Ég held það væri réttast að vingast við einhverja af þessum topprugludöllum hjá ríkinu og næla sér þannig í ráðgjafadjobb, svona til að hafa það huggulegt í kreppunni. Ég gæti alveg notað eins og 50 millur fyrir að sitja á kaffifundum í svona svosem hálfan mánuð, algjörlega ófær um að finna neinar lausnir eins og nú tíðkast.

Ég held að við ættum að sameinast um að græða á kreppunni núna. Svínum ríkissjóð í botn, því það er móðins hjá ráðamönnum, og laumumst síðan í þeirra skjóli í flott sendiherradjobb einhvers staðar í langtíbortistan, þó ekki væri nema í svona eins og 4 ár. Það þarf varla meira til að næstu valdhafar verða búnir að gleyma því hvað maður var gagnslaus og þá kemst maður aftur á spenann.

Amen, kúmen, hálsmen úr hampi takk.


mbl.is 350 milljónir í ráðgjöf og almannatengsl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki spurning um það...

hvort liðið fer áfram heldur hversu snautlega útreið Olígarkarnir frá Stamfurðubryggju fá í þessum tveimur leikjum. Mín spá, eins og fram hefur komið annars staðar er að mínir menn vinni á Anfield, 3-0, þar sem Torres sallar inn 2 mörkum og Hyypia einu ef hann er leikfær. Annars treysti ég því að Babel taki upp þann hanska.

You'll Never Walk Alone!!!!


mbl.is Gerrard: Okkar lið gefst aldrei upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir eru greinilega orðnir lafhræddir

Skiljanlegt. Það eru ekki margir sem hafa getað lokað á boðleiðirnar til hans í vetur. Það verður fróðlegt að sjá hvers konar lúalegar aðferðir verða notaðar til að halda aftur af honum.
mbl.is John Terry: Verðum að stöðva Torres
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út með karlvitleysinginn

Ekki spurning að hann ætti að skammast sín og pilla sig aftur í BDSM klefann sinn, og þar með að hætta öllum afskiptum af Formúlunni. Menn hafa þurft að sjá á bak metorðum fyrir minna en hann gerði, þó það virðist ekki ætla að gerast hér á klakanum, þar sem allir virðast geta skitið upp á bak án þess að neitt sé að gert.
mbl.is Webber: Mosley-hneykslið hefur komið óorði á formúluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur árangur

Sem gamall sundmaður þá get ég ekki annað en klappað fyrir þessum frábæra árangri Sindra. Vonandi að við eigum eftir að heyra heilmikið af þessum unga sundkappa á komandi árum.
mbl.is Sindri Þór með flott piltamet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann ætti...

að halda sig við að sinna móður sinni þar til hún er komin heim af spítalanum, eða í það minnsta þar til hún er örugglega úr hættu. Liðið verður bara að lifa án hans, enda þykjast þeir eiga nægan mannskap til að koma í stað þeirra sem forfallast.

Ekki það að ég sé eitthvað smeykur við "Feita Frank", nema hvað hann er svo gjarn á að skora þessu fjárans "deflected goals". Ótrúlegt hvað það hefur fallið með honum þar, þegar blaðran er á leið upp í Ö-röð í áhorfendasvæðunum, þá verður einhver ólánsamur varnarmaður fyrir boltanum og þar með verður enn eitt óverðskuldaða markið að veruleika.


mbl.is Lampard til í slaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábærar fréttir

Alveg klárt mál að Olígarkarnir frá Sélsky munu titra á beinunum, vitandi að bæði Gerrard og Torres verða með. Hér er skálað fyrir 3-0 sigri, en kannski er það pínulítið mikil bjartsýni. Bara minni á að meira að segja Aston Villa skoraði 4 mörk á móti þeim fyrir skömmu. Allt hægt Tounge
mbl.is Gerrard verður með Liverpool annað kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilegt, miðað við hvað þeim gengur erfiðlega að gera eitthvað af viti

Nú ætla ég ekki að halda því fram að ég sé eitthvað betri en þeir, alltaf með allt niðrum mig peningalega. En fjárinn hafi það þessir menn hefðu átt að vera menntaðir í fræðunum, ekki skipaðir á pólitískan hátt, því það er skotheld leið til að skíta upp á bak í málefnum sem þeir hafa ekkert vit á.
mbl.is Meirihluti ber lítið traust til Seðlabankanss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mál til komið

Það er langt síðan staðsetning Reykjanesbrautarinnar í gegnum Hafnarfjörðinn var orðin að hreinni tímaskekkju. Ég er bara ekki að sjá að stoðbrautir innanbæjar þar séu að anna allri þeirri umferð sem þörf er á. Því er vonandi að Vegagerðin fari nú að hysja upp um sig brækurnar og gangi í að undirbúa það verk, með góðum fyrirvara. Þeir geta vel farið í að reikna út efnisþörf, burðargetu undirlags og aðra skipulagsvinnu, sem og byggingu mislægra gatnamóta, löngu áður en raunveruleg framkvæmd við færsluna er set í fullan gang. En eins og venjulega verður sleifarlag stjórnvalda væntanlega til þess að ekki verður hreyfð ein einasta steinvala fyrr en í fyrsta lagi 2012, því það þarf að redda fleiri gæluverkefnum misviturra stjórnmálahálfvita fyrst.
mbl.is Alveg skýrt að hluti Reykjanesbrautar verður færður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúlegt eða hitt þó heldur

Ég vildi óska að þeir gætu framkvæmt þetta. Vandamálið er að margir af þeim sem hýsa svona ógeð eru að keyra netþjónana bakvið flakkandi IP tölur og hafa því dýnamísk lénsheiti, til að verjast svona áhlaupum. Og hvernig ætla Google menn að framfylgja þessu? Ekki geta þeir brotist inn á viðkomandi netþjón til að fjarlægja síðurnar, þar sem það er ólöglegt athæfi. Kannski geta þeir ráðist beint gegn Name Server-unum, sem vísa á hvert skuli elta lénsheitið.

Svo er annað sem mér finnst vera áhyggjuefni og það er hvort þeir láti staðar numið þarna. Er ekki eins víst að þeir vaði gegn síðum sem gagnrýna stjórnvöld eða fyrirtæki eða eitthvað annað sem Google herrunum mislíkar?

Eins og ég sagði þá vona ég að þetta verði framkvæmanlegt, en mér er það til efs. Því miður 


mbl.is Google í herferð gegn barnaklámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Tómas Þráinsson
Tómas Þráinsson
Hef skoðanir á öllu og er ekki alltaf kurteis um málin, enda ekki ástæða til

Tónlistarspilari

Tómas Þráinsson - Litli Úlfur
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband