Færsluflokkur: Bloggar

Of seint Jóhanna

Fyrir það fyrsta, þá er enginn raunverulegur hagvöxtur framundan, þar sem það litla sem hefði komið að óbreyttu, er farið í hendurnar á vinum þínum fjárglæframönnunum nú þegar.

Að hlusta á þetta óráðsröfl í kerlingunni er náttulega bara sprenghlægilegt. Hún er eins veruleikafirrt og forveri hennar í stólnum, ásamt þeim sem sátu þar síðastliðin 90 ár.


mbl.is Ofurlaunaliðið fær ekki að soga til sín hagvöxtinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvæð frétt - JESSSSSSSSSSSS!!!

Mér er alltaf jafn mikið brugðið eins og þegar ég sé jákvæðar fréttir í fréttamiðlum landsins. Yfirleitt eru allir miðlar svo uppfullir af neikvæðni og væli að það er ekki nokkur leið að hlusta eða lesa allann óþverrann. Mogginn fær kredit fyrir þetta, en betur má ef duga skal elskurnar.
mbl.is Boltinn rúllar í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumórar = Delerium Tremens

BWAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA

Bjartsýnin svífur yfir vötnum þarna, eins og annars staðar í pólitíska landslaginu. Það verða engar umbætur þarna eða annars staðar í pólitísku landslagi Íslands. Spillingin er of rótgróin til að það geti gerst.


mbl.is Samfylkingin ræðir umbætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er þeim líkt

Ég held svei mér þá að það sé eitthvað meira en lítið að þessum rugludöllum í Grínpís. Verði þeim að góðu að velkjast utan í borpalli næstu vikurnar. Ég mæli með því að bera ómælt magn af koppafeiti á burðarlappir pallsins, svo þessir álfar komist ekki upp á pallinn vandræðalaust, það yrði þeim mátulegt.
mbl.is Fóru um borð í olíuborpall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki í lagi þarna??

Hvern andskotann á svona fíflagangur að þýða?? Get ég reiknað með því að NBI gerist svo vinalegir að tryggja mér það að þurfa bara að endurgreiða 5,6% af eftirstöðvum míns bílaláns?? Varla, en það er sú krafa sem ég mun klárlega gera. Að auki mun ég fara dómstólaleiðina, ef með þarf, til að fá fellda niður þá ábyrgð sem faðir minn gekk í, til að lánið fengist. Það er nefnilega dagljóst að hann hefði aldrei gerst ábyrgur ef hann hefði vitað að minnsti vafi væri á lögmæti þessara lánaskilmála.

Fari þessir helvítis hundaklifberar norður og niður og éti úldinn hund, ég er sko búinn að fá upp í kok af þessu siðlausa ruslaraliði.


mbl.is Avant fær að leita nauðasamninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og á þá að endurtaka leikinn sem þeir léku..

þegar þeir fóru til Suður-Ameríku hér um árið??? Ég held að fátækustu ríkin geti alveg án þeirrar hjálpar verið, því það er alveg gulltryggt að AGS mun mergsjúga þessi ríki og gera svo kröfu um að hvers kyns auðlindir í löndum þeirra verði afhent einkavinum AGS stjóranna.
mbl.is AGS: Meiri stuðning fyrir fátæk ríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afþökkum þá þetta fjárans lán og...

segjum þessum apaheilum í Nýju Jórvík að hypja sig heim með allt sitt hyski. Það er búið að skuldsetja okkur mikið meira en nóg, úr því að ríkisstjórnin og þingið ákváðu að lúffa fyrir Hollendingum og Bretum, og ég segi því að nú er nóg komið.

Við þurfum ekki þessi lán frá AGS, ég vil ekki sjá þá troðast til áhrifa hér, því það er alþekkt að hvar sem þeir eru með puttana fer allt til andskotans á örskammri stundu. Ég skal meira að segja splæsa í frímerki á rassgatið á þessum vitleysingum, svo framarlega sem ég þarf ekki að leggja meira en hundrað kall í það mál, því ég sé ekki ástæðu til þess að senda þá heim á sagaclass. Það væri miklu nær að tjarga þá og fiðra, að hætti villta vestursins.


mbl.is Ekki á dagskrá 14. september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna trúnaður??

Er það meiningin að það eigi að halda upplýsingum sem viðkoma þjóðarhag leyndum, bara af því að aðalruddarnir í Evrópu óska eftir því?? Ég held nú síður. Ég vil að ríkisstjórnin segi þeim að éta það sem úti frýs og gera allar athugasemdir þeirra og hugmyndir opinberar. Þeir hafa ekki komið fram með þeim hætti að það sé nokkur ástæða til að fara að þessum óskum þeirra.
mbl.is Óska eftir trúnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt hjá Stefáni en.....

Lokahringur meistaramóts GR var á Grafarholtsvellinum, ekki Korpúlfsstöðum, eins og blaðamaður hélt fram í fréttinni. Ég held að blaðamenn ættu að vanda aðeins meira til verka í fréttaflutningi sínum, í stað þess að henda fréttunum fram hálfköruðum.

Til hamingju Stefán og Helena, þetta var flottur árangur hjá ykkur báðum.


mbl.is Stefán jafnaði vallarmetið og tryggði sér sigur hjá GR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algjör afleikur stjórnvalda

Þegar þessi ríkisstjórn tók við völdum, þá var það yfirlýst stefna þeirra að sækja ekki peningana til þeirra sem minnst hafa umleikis. En hvað gerist? Jú, hærri skattar, hærra bensínverð og þess háttar vitleysa.

Svo ég taki dæmi af mínum bílrekstri, og ég er ekki á dýrum bíl, er að fyrir hækkun þá þurfti ég að eyrnamerkja 30þúsund krónur af útborguðum launum í bensín til að komast í og úr vinnu, auk smásnatts sem alltaf kemur til. Núna er ég að horfa upp á hækkun upp í 35-38þúsund á hverjum mánuði og það er án þess að launin mín hækki á nokkurn hátt. Í raun hef ég orðið fyrir talsverðu tekjutapi frá því að bankarnir hrundu í haust, þar sem yfirvinna er nánast horfin hjá mér, og hún var nú ekkert óskaplega mikil fyrir en það munaði talsvert um hverja klukkustund.

Ég bý á Suðurnesjunum og sæki vinnu í Reykjavík, þar sem ekkert er í boði hér suðurfrá vegna algjörs aulaskapar sveitastjórnanna hér, sér í lagi þeirra í Reykjanesbæ. Þegar herinn fór, var ekkert gert til að auðvelda fólki að finna sér vinnu í heimabyggð. Það eina sem hugsanlega finnst hér er svo illa launað, að ég er skár settur að keyra milli Reykjavíkur og heimilis, en að reyna að ná mér í vinnu í heimabyggð.

Því vil ég kalla þetta glappaskot stjórnvalda algjöran glæp gegn heimilunum. Þið eruð að tryggja það að missa allt fylgið ykkar í næstu kosningum og sennilega stærsta kosningasigur hægriaflanna síðan sögur hófust.  Ég hef hreinlega ekki lengur efni á að borga fyrir fæði og klæði ofan í fjölskylduna, þegar borgað hefur verið af skuldum og skyldum. Er þetta það sem stjórnvöld höfðu í huga þegar þau lofuðu því að verja heimilin í landinu???

Jóhanna og Steingrímur, þið eruð ótíndir bófar í mínum huga og þangað til þessi vitleysa hefur verið leiðrétt þá mun sú skoðun mín ekki breytast nokkurn skapaðan hlut.

Ég skora hér með á Seðlabankann að lækka stýrivextina niður í 3% strax, reka AGS úr landi hið snarasta og stinga bankaglæpalýðnum beinustu leið í grjótið. Látið þessa hálaunagosa borga fyrir eigin óráðsíu, látið heimilin í landinu vera.

Ég hef sjaldan orðið eins reiður og í dag, þegar Samfylkingin og Vinstri Grænir drulluðu upp á bak, hnakka og upp fyrir haus. Ég lýsi hér með vantrausti á þessa handónýtu ríkisstjórn og skora á þá sem stóðu að búsáhaldabyltingunni að setja allt í gang aftur og reka þetta lið út úr þinghúsinu.


mbl.is Bensínið aldrei dýrara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Tómas Þráinsson
Tómas Þráinsson
Hef skoðanir á öllu og er ekki alltaf kurteis um málin, enda ekki ástæða til

Tónlistarspilari

Tómas Þráinsson - Litli Úlfur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband