Hvers vegna í ósköpunum er tekið svona mikið mark á skoðanakönnunum?

Gera menn sér ekki grein fyrir því að stór hluti svarenda svara annað hvort út í hött eða neitar að svara?

Persónulega er ég óákveðinn með inngöngu í þetta ESB monster. Ég vil samt að við sækjum um og fáum allt upp á borðið. Hvar græðum við? Hvar töpum við? Töpum við meiru en við græðum eða er það þveröfugt?

Tilfellið er að við höfum ekki hugmynd um hvar við stöndum fyrr en skriffinnarnir í Brussel koma með sína kröfugerð, eftir að við leggjum okkar umsókn inn. Þeir vita líka að Íslendingar eru mjög viðkvæmir fyrir öllum kröfum gagnvart landbúnaði eða fiskimiðum. Þess vegna væri ekkert óeðlilegt að við beittum fyrir okkur vatninu okkar, þar sem vatnsbúskapur þeirra í Evrópu er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir. En eins og ég sagði, sækjum um, vegum og metum allt sem er uppi á borði í viðræðum þeirra og okkar. Þjóðin mun síðan vega og meta þær upplýsingar sem koma upp og gefa upp skoðun sína í þjóðarathvæðagreiðslu.


mbl.is Færri fylgjandi ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Hefurðu lesið skýrslu Evrópunefndar forsætisráðherra frá 2007 sem samin var í kjölfar 2 ára ítarlegrar vinnu með aðkomu fulltrúa allra stjórnmálaflokkanna á þingi?

http://www.forsaetisraduneyti.is/utgefid-efni/nr/2558

Staðreyndin er að það er vitað að langmestu leyti nú þegar hvað innganga í Evrópusambandið hefði í för með sér. En það þarf auðvitað að kynna sér málið.

Hjörtur J. Guðmundsson, 24.1.2009 kl. 13:19

2 Smámynd: Tómas Þráinsson

Það er ekki nóg að lesa bara einhverja skýrslu nefndar á vegum íslensku ráðuneytanna. Raunverulegar kröfur ESB til okkar koma aldrei almennilega í ljós að fullu fyrr en við sækjum um og hefjum marktækar aðildarviðræður. Skýrslan er vissulega ágæt sem undirbúningsvinna og getur hjálpað okkur að því leiti að við getum komið með gagntilboð, mótrök og annað sem til þarf. En einhvern veginn er það nú þannig, að úr því að þetta þarf hvort sem er að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu, þá er nauðsynlegt að sækja um og fá allt upp á borðið og allar upplýsingar sem þá liggja fyrir verða að vera mjög aðgengilegar fyrir almenning, annars er enginn möguleiki fyrir fólk að taka upplýsta ákvörðun með eða á móti. Eins og ég sagði í pistlinum mínum, þá er ég í hvorki-né hópnum, vegna þess að ég hef ekki nægilega góðar upplýsingar.

Tómas Þráinsson, 24.1.2009 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tómas Þráinsson
Tómas Þráinsson
Hef skoðanir á öllu og er ekki alltaf kurteis um málin, enda ekki ástæða til

Tónlistarspilari

Tómas Þráinsson - Litli Úlfur
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband