12.4.2008 | 23:58
Verður hrikaleg spenna
Þetta verður alveg geggjaður dagur á morgun, úr því að menn reikna með að vindur og tiltölulega kalt loft verði ráðandi á vellinum í Augusta. Ég held að Tiger eigi eftir að spila mikið sóknargolf, því hann hefur í raun engu að tapa. Hann er 6 höggum á eftir efsta manni og þarf að fara á mikið flug til að ná í skottið á Immelman, sem var að spila feiknalega vel í dag.
Ég yrði hissa ef Tiger endaði á einhverju miðjumoðsskori. Annað hvort verður hann á 65 eða þar um bil, eða háum sjöunda tugnum, vegna sóknarspils. Verður fróðlegt að fylgjast með þessu allavega.
Mér fannst magnað að sjá mistökin hjá Mickelson á 16. í dag. Togaði teighöggið í glompuna hægra megin við flötina og var þar í spæleggi í niðurhalla og komst ekki nær holunni en um það bil 12 metrum (mín ágiskun) . Svo púttaði hann alveg skelfilega illa í fyrstu tilraun og fékk því þrípútt í hausinn og tvöfaldann skolla,öðru nafni Skramba. Hann er í raun dottinn úr baráttunni, því hann er orðinn 9 höggum á eftir Immelman og þarf því að rústa vallarmeti Greg Norman til að eiga minnsta möguleika á að sigra þetta.
Immelman með tveggja högga forskot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Göngubrú boðin út að nýju
- Gul viðvörun vegna hvassviðris
- Heimatilbúnar sprengjur líklegasta orsökin
- Týndi skíðunum í umferðinni
- Sindri metinn hæfastur
- Spáir allt að 35 m/s í hviðum
- Glíma við gróðurelda við Grindavík
- 55% þjóðarinnar óánægð með áform Landsbankans
- Þjónustustöð við Markarfljótsbrú
- Hvassir vindstrengir undir Vatnajökli
Erlent
- Verður England ný vagga vínræktunar?
- Rússar réðust á þrjú raforkuver í Úkraínu
- 42 látnir eftir árás Ísraelshers í Sýrlandi
- Skömmuð fyrir að vera án brjóstahaldara og krefst fundar
- Keyrði um á milli húsa og myrti fólk
- 45 látnir eftir rútuslys: Aðeins átta ára barn lifði af
- Gæti orðið stærsta útborgunin frá upphafi
- Heita því að koma á lögum og reglu
- Fundu lík tveggja í ánni
- Hótað eftir að hún lýsti árásunum sem þjóðarmorði
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.